Sérhæfð þjónusta

Þjónustan

Sérhæfð skólaþjónusta í traustu og fyrirsjáanlegu umhverfi.

Suðurbæjarskóli sinnir grunnskólanemendum sem njóta sín ekki í almennu grunnskólaumhverfi. Við vinnum í nánu samstarfi með sveitarfélögum og heimaskóla hvers nemanda. Nemandinn er skráður í sinn heimaskóla meðan á þjónustunni stendur.

Markmið þjónustunnar

Meginmarkmið okkar er að nemendur upplifi vellíðan, læri og nái framförum í námi á eigin forsendum. Hjá okkur er jákvæðni og trú á eigin getu í fyrirrúmi og við vinnum markvisst með námsmarkmið, félagsfærni og tilfinningastjórn.

Við viljum að:

Hverjir geta notið þjónustunnar?

Þjónustan er ætluð grunnskólanemendum í 1. til 5. bekk sem njóta sín ekki í almennu skólaumhverfi. Tilvísun kemur frá sveitarfélagi, oft í samráði við foreldra og fagfólk sem þekkir nemandann.

Skólaforðun

Börn sem glíma við skólaforðun

Nemendur sem eiga erfitt með að mæta í almennt skólaumhverfi þurfa oft markvissari nálgun og minni hópa til að geta náð tökum á námi.

Hegðun

Hegðunar- og tilfinningalegar áskoranir

Börn þar sem hefðbundið skólaumhverfi er of yfirþyrmandi, of krefjandi eða þar sem félagslegar áskoranir hamla þátttöku í námi.

Nám

Dregið sig úr námi

Nemendur sem eru af einhverjum orsökum í skertri stundatöflu í sínum skóla og þurfa smærra og sérhæfðara umhverfi til að komast af stað aftur.

Samstarf við sveitarfélög

Við vinnum náið með sveitarfélagi og heimaskóla hvers nemanda.

Þverfaglegt teymi — kennari, þroskaþjálfi, atferlisfræðingur og sálfræðingur — vinnur saman að því að gefa nemandanum faglega skólaþjónustu.

Áhugi á þjónustunni?

Kynntu þér hvernig inntökuferlið lítur út.

Lesa um ferlið →