Skýrt skipulag, litlir hópar og öruggt umhverfi þar sem nemendur geta einbeitt sér að námi á eigin forsendum.
Daglegt skipulag Suðurbæjarskóla er byggt í kringum þarfir nemendanna. Við leggjum áherslu á að skóladagurinn sé fyrirsjáanlegur, öruggur og skemmtilegur þannig að nemendur geti beint orku sinni í nám og sjálfseflingu.
Nemendur í Suðurbæjarskóla eru í litlum hópum. Þetta gerir okkur kleift að veita hverjum nemanda sérstaka athygli og að aðlaga nám að þörfum, getu og áhugasviðum hvers og eins. Starfsfólk þekkir alla nemendur vel.
Margir nemendur þurfa á skýrri og stöðugri rútínu að halda. Dagurinn er skipulagður þannig að nemendur vita hvað er á dagskrá og geta undirbúið sig fyrir breytingar. Skýrar reglur og fyrirsjáanlegt skipulag skapar öryggi sem er forsenda náms.
Nám hvers nemanda tekur mið af einstaklingsáætlun sem gerð er í samráði við foreldra og heimaskóla. Við fylgjum námskrá grunnskóla en aðlögum kröfur, hraða og umfang að þörfum hvers nemanda.
Kennari leiðir nám og fylgist með framförum. Reglulegar endurskoðanir tryggja að áætlunin sé alltaf í takt við stöðu og markmið nemandans.
Hluti af daglegu starfi er að vinna markvisst með félagsfærni og tilfinningastjórn. Við notum skipulagðar og gagnreyndar aðferðir til að hjálpa nemendum að þroska þessa mikilvægu færni.
Atferlisfræðingur og þroskaþjálfi veita stuðning og ráðgjöf og vinna náið með sérkennara og öðru starfsfólki.
Við höldum reglulega teymisfundi með foreldrum, fulltrúum frá sveitarfélagi og heimaskóla. Þar eru framfarir ræddar og sameiginleg markmið uppfærð.
Markmið okkar er alltaf að nemandinn geti smám saman styrkt tengsl við heimaskóla og almennt skólastarf, hvert á sínum hraða.
Kynntu þér hvernig inntökuferlið lítur út.