Grunnskólaúrræði fyrir
börn með aukna stuðningsþörf
Suðurbæjarskóli sinnir grunnskólanemendum sem njóta sín ekki í almennu grunnskólaumhverfi og þurfa sérhæfðara og markvissara úrræði. Sveitarfélög og Suðurbæjarskóli vinna í samstarfi, en nemandi er enn skráður í sinn heimaskóla meðan hann sinnir námi í Suðurbæjarskóla. Um er að ræða börn sem hafa dregið sig úr námi, glíma við skólaforðun eða aðrar hegðunar- og tilfinningalegar áskoranir. Markmiðið er að skapa stöðugt og fyrirsjáanlegt skólaumhverfi þar sem unnið er að bættri námsþátttöku, tilfinningastjórn og bættri líðan.
Hugmyndafræði Suðurbæjarskóla
Suðurbæjarskóli starfar eftir einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem þarfir hvers nemanda eru metnar og unnið er markvisst út frá styrkleikum þeirra, áskorunum og þroskastigi. Lögð er áhersla á skýra umgjörð, fyrirsjáanleika og jákvæð samskipti til að skapa öryggi og stuðla að bættri líðan og virkri þátttöku í skólaumhverfi. Starfsemin byggir á faglegri teymisvinnu og nánu samstarfi við foreldra og sveitarfélög. Unnið er markvisst með félags- og tilfinningafærni samhliða námsmarkmiðum til að styðja við heildrænan þroska nemenda. Reglulegir teymisfundir og mat á framvindu tryggir að stuðningur og þjónusta stuðli að þörfum hvers og eins.
Lítið og heimilislegt skólaumhverfi
Skólaumhverfi Suðurbæjarskóla er lítið og heimilislegt sem hentar vel börnum sem þykir hefðbundið skólaumhverfi yfirþyrmandi.
Einstaklingsmiðað nám
Nám allra nemanda tekur mið af þörfum hvers og eins þar sem hverjum nemanda er mætt þar sem hann er staddur með tilliti til þroska og áhuga.
Samstarf með foreldrum
Haldnir eru reglulegir teymisfundið með foreldrum og teymi nemanda.
Sérþekking á vanda
Í Suðurbæjarskóla starfa sérkennari, þroskaþjálfi, atferlisfræðingur og sálfræðingur sem veita stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
Um starfið
Litlir hópar
Kennsla fer bæði fram í einstaklingstímum og í fámennum hóptímum.
Skipulag og rútína
Skýrt skipulag og skýrar reglur skapar öryggi og fyrirsjáanleika fyrir nemendur
Áhrifaríkar aðferðir
Unnið er samhliða að námsmarkmiðum og félags- og tilfinningafærni með skipulögðum og gagnreyndum aðferðum.
Samvinna
Teymisfundir eru haldnir reglulega og samskipti við foreldra eru í forgangi til að tryggja samræmi í stuðningi.
Betri líðan í skóla
Okkar markmið byggir fyrst og fremst á að nemendur upplifi vellíðan í skóla.
Hafðu samband
Ef þú vilt frekari upplýsingar, endilega hafðu samband!